Fotbolti.net
09.01.08 - 15:39
Magnús Már Einarsson

Jón Gunnar í Keflavík (Staðfest)

Jón Gunnar í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Keflavík hefur fengið miðjumanninn Jón Gunnar Eysteinsson frá Fjarðabyggð en þetta staðfesti Friðrik Rúnar Friðriksson framkvæmdastjóri fyrrnefnda félagsins við Fótbolta.net í dag.
Jón Gunnar sem er 21 árs gamall hefur gert þriggja ára samning við Keflvíkinga. Hann er þriðji leikmaðurinn sem Keflavík fær í vetur en áður höfðu Patrik Redo og Ivica Skiljo samið við félagið.

Jón Gunnar er uppalinn Fjarðabyggð en árið 2003 gekk hann til liðs við KA. Eftir að hafa leikið með KA frá 2004-2006 gekk hann aftur til liðs við Fjarðabyggð í fyrrahaust og samdi til tveggja ára.

Í sumar skoraði hann fimm mörk fyrir Fjarðabyggð í 25 leikjum í deild og bikar en hann lék alla leiki liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.