Fotbolti.net
09.01.08 - 16:40
Hafliði Breiðfjörð

Eyþór Atli og Hrafn Davíðsson í Fjölnir (Staðfest)

Eyþór Atli Einarsson í leik með Njarðvík í sumar.

Eyþór Atli Einarsson í leik með Njarðvík í sumar.

Canon

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Fjölnismenn hafa bætt við sig tveimur sterkum leikmönnum fyrir baráttuna í Landsbankadeildinni næsta sumar því Eyþór Atli Einarsson og Hrafn Davíðsson eru gengnir til liðs við félagið. Þetta staðfesti Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis við Fótbolta.net í dag.
Eyþór Atli kemur til félagsins frá Grindavík. Hann hefur æft með Fjölni undanfarnar vikur og spilað með þeim æfingaleiki.

Hann var hjá Grindavík framan af síðasta sumri og lék þar fjóra leiki áður en hann var lánaður til Njarðvíkur 16. júlí. Hann á að baki 55 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim eitt mark.

Eyþór var samningbundinn Grindavík út þetta ár og því þurfa félögin að komast að samkomulagi um félagaskiptin en hann gerir svo eins árs samning við Fjölnismenn. Hann hefur leikið með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.

Hrafn Davíðsson er markvörður sem er uppalinn í Árbænum en hefur leikið með ÍBV undanfarin ár.

Hann mun verða hjá Fjölnismönnum fram í ágúst þegar hann heldur utan til náms í Bandaríkjunum eins og undanfarin ár en gerir tveggja ára samning við Fjölnir og síðara árið mun hann geta verið hjá þeim allt tímabilið.

Hrafn á að baki 21 leik í efstu deild hér á landi alla með ÍBV. Hann er 24 ára gamall og hefur leikið með U21 og U19 ára landsliðum Íslands

Fjölnir hefur nú styrkt lið sitt með fimm leikmönnum fyrir baráttuna í Landsbankadeildinni næsta sumar því áður höfðu þeir fengið Óla Stefán Flóventsson úr Grindavík, Ágúst Gylfason úr KR og Ólaf Pál Snorrason úr FH.
Hrafn Davíðsson.

Hrafn Davíðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.