09.02.05 - 09:47
Hafliði Breiðfjörð
Chadwick til Plymouth (Staðfest)

Plymouth, lið Bjarna Guðjónssonar fékk í gær í sínar raðir Nick Chadwick frá Everton. Framherjinn ungi hafði vakið áhuga Bobby Williamson stjóra Portsmouth er liðin mættust í enska bikarnum og nú hefur hann fengið leikmanninn í sínar raðir.
Chadwick skoraði eitt mark í 3-1 sigri í leiknum. Hann kostar Plymouth 250 þúsund pund en Chadwick hefur verið mikill markaskorari í unglingaliðum félagsins og varaliði en hefur ekki tekist að vinna sér fast sæti í aðalliðinu. Hann er 22 ára og gerir samning við Plymouth til ársins 2008.
,,Við urðum að berjast við mikla samkeppni. Hann er leikmaður sem ég hef dáð um stund," sagði Wílliamson.
,,Tækifærið á að koma hingað og spila með aðalliði var stór gulrót fyrir hann. Hann er leikmaður sem nokkur lið í þessari deild hefðu viljað. Þeir vildu bíða og fá hann frítt á Bosman en við vorum tilbúnir að greiða uppsett verð."