Fotbolti.net
09.02.07 - 15:38
Magnús Már Einarsson

Marko og Nicolai í Keflavík (Staðfest) (Uppfært)

Marko og Nicolai í Keflavík (Staðfest) (Uppfært)
Canon

Mynd: Jón Örvar Arason

Marko Kotilainen og Nicolai Jörgensen skrifuðu í dag undir eins árs samning við Keflvíkinga en þeir hafa verið til reynslu hjá liðinu að undanförnu og þá spiluðu þeir æfingaleiki gegn HK og Grindavík í vikunni.
,,Marco Koitilainen er sóknarmiðjumaður sem er hugsaður hjá okkur sem hægri kantmaður en hann getur spilað sókn og inni á miðri miðjunni. Hann er sú týpa sem við höfum verið að leita að. Við höfum verið að leita að fljótum leikmanni og höfum fundist okkur vanta kantmenn," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga við Fótbolti.net um hinn sænska Marco sem spilaði síðast með B-liði Real Betis á Spáni.

,,Jörgensen er vinstrifótarleikmaður sem getur spilað bæði á kanti og í bakverði. Við höfum verið að horfa á að bæta við leikmönnum á kantana, hvort sem það sé vinstri eða hægri," bætti Kristján við en hann býst ekki við mörgum nýjum leikmönnum í viðbót til Keflvíkinga fyrir sumarið.

,,Ég útiloka ekki einn leikmann í viðbót en annars er það ekki mikið meira," sagði Kristján að lokum við Fótbolti.net.

Heimild: Víkurfréttir

Marko og Nicolai í Keflavík (Staðfest) (Uppfært)
Canon
Marko og Nicolai í Keflavík (Staðfest) (Uppfært)
Canon
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.