Fotbolti.net
09.02.15 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Ings og Kane fremstir

Harry Kane.

Harry Kane.

Canon

Mynd: Getty Images

Julian Speroni er markvörður í úrvalsliði helgarinnar í enska boltanum en margir áhugaverðir leikir voru á dagskránni. Speroni var í ham þegar Crystal Palace vann 1-0 sigur gegn Leicester. Afar mikilvægur sigur fyrir Crystal Palace.

Hér að neðan má sjá úrvalsliðið en þar er fyrirliði að sjálfsögðu Harry Kane eftir að hafa tryggt Tottenham sigur gegn Arsenal.


Branislav Ivanovic, varnarmaður Chelsea, er í liðinu eftir sigur gegn Aston Villa og fær hann félagsskap frá Jan Vertonghen í Tottenham en belgíski landsliðsmaðurinn var sem klettur í öftustu línu.

Cheikhou Kouyate skoraði fyrir West Ham í 1-1 jafntefli gegn Manchester United og Alex Bruce var frábær hjá Hull í 1-1 jafntefli gegn Manchester City.

Jordon Ibe var óheppinn að skora ekki í grannaslagnum gegn Everton en leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Robbie Brady hjá Hull var öflugur, bæði varnar- og sóknarlega.

Mark Noble stóð sig vel í baráttunni á miðjunni gegn Manchester United, rétt eins og David Meyler gerði fyrir Hull gegn City. Danny Ings veitir svo Kane félagsskap í sóknarlínunni.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.