Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 09. febrúar 2026 20:11
Brynjar Ingi Erluson
Ólsarar kaupa Daða af Val (Staðfest)
Mynd: Víkingur Ó.
Víkingur Ólafsvík hefur fest kaup á varnarmanninum Daða Kárasyni frá Val. Hann semur við Ólsara út 2027.

Daði er 25 ára gamall miðvörður sem spilaði með Ólsurum tímabilin 2023, 2024 og 2025 á láni frá Val ásamt því að hafa leikið með Selfyssingum seinni hluta síðasta tímabils í Lengjudeildinni.

Hann er uppalinn Valsari og lék með yngri flokkum félagsins ásamt því að hafa spilað með meistaraflokki í vetur.

Ólsarar náðu samkomulagi við Val um kaup á Daða og voru skiptin staðfest í dag. Hann mun leika með liðinu næstu tvö tímabil.

Á síðasta tímabili lék hann sextán leiki með Ólsurum sem höfnuðu í áttunda sæti 2. deildar með 28 stig.


Athugasemdir
banner
banner