Fotbolti.net
09.02.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vestri fær argentínskan varnarmann (Staðfest)

Vestri fær argentínskan varnarmann (Staðfest)
Canon

Mynd: Vestri

Hertz
Vestri tilkynnti í gær um komu Florencia Barraza til félagsins en hún er reynslumikill argentínskur varnarmaður.

Hún á að baki feril í heimalandinu, Kosta Ríka, á Spáni og Ítalíu. Hún er 31 árs og bætist við hópinn hjá Vestra, en félagið hefur verið duglegt að sækja liðsstyrk í liðið sem er í 2. deild.
Í síðustu viku tilkynnti Vestri að þær Una og Agla hefðu skrifað undir samning við félagið.

Úr tilkynningu Vestra:
Una Proppé Hjaltadóttir, 17 ára Þingeyringur, og Agla Vigdís Atladóttir, 18 ára Ísfirðingur, hafa báðar skrifað undir sinn fyrsta samning. Báðar efnilegir sóknarmenn sem verið hafa í hópnum síðustu tvö ár. Þær eru mikilvægar jafnt innan sem utan vallar.

Það verður spennandi að fylgjast með þeim í efnilegu liði Vestra í sumar. Til hamingju með áfangann Una og Agla!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.