Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 09. febrúar 2026 16:39
Elvar Geir Magnússon
Watford hefur ráðið bróður Will Still (Staðfest)
Mynd: Watford
Edward Still hefur verið ráðinn nýr stjóri Watford í ensku Championship-deildinni og skrifaði undir samning til tveggja og hálfs árs.

Hann tekur við af Javi Gracia sem sagði upp eftir að hafa verið aðeins þrjá mánuði með stjórnartaumana.

Still er 35 ára og var aðstoðarþjálfari Anderlecht en hann er eldri bróðir Will Still sem stýrði Southampton.

„Ég er í skýjunum með að vera kominn í þetta félag sem á stórt pláss í enskum fótbolta og á magnaða sögu," segir Edward Still sem býr yfir reynslu sem stjóri hjá Charleroi, Eupen og Kortrijk í Belgíu.

Hann er fjórtándi stjóri Watford síðan í september 2019 en þá eru bráðabirgðastjórar ekki taldir með.

Charlie Daniels, sem stýrði Watford í síðustu tveimur leikjum, verður áfram í þjálfarateyminu og þá mun Karim Belhohicine einnig koma inn og aðstoða Still.

Watford er í ellefta sæti Championship-deildarinnar en aðeins þremur stigum frá umspilssæti.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 35 21 8 6 72 38 +34 71
2 Middlesbrough 34 18 9 7 51 34 +17 63
3 Millwall 35 18 8 9 47 40 +7 62
4 Ipswich Town 33 17 9 7 59 34 +25 60
5 Hull City 34 18 6 10 56 48 +8 60
6 Wrexham 35 15 12 8 54 45 +9 57
7 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
8 Derby County 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Watford 35 13 12 10 45 41 +4 51
10 Bristol City 35 14 8 13 48 44 +4 50
11 Birmingham 34 13 10 11 45 43 +2 49
12 Preston NE 35 12 13 10 41 40 +1 49
13 Sheffield Utd 35 15 3 17 50 48 +2 48
14 Stoke City 35 13 8 14 39 34 +5 47
15 QPR 35 13 8 14 46 54 -8 47
16 Swansea 35 13 7 15 40 43 -3 46
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 35 10 11 14 33 44 -11 41
19 Portsmouth 34 10 9 15 34 44 -10 39
20 Blackburn 35 10 8 17 33 46 -13 38
21 West Brom 35 9 8 18 34 52 -18 35
22 Leicester 35 10 10 15 47 56 -9 34
23 Oxford United 35 7 11 17 31 47 -16 32
24 Sheff Wed 35 1 8 26 21 71 -50 -7
Athugasemdir
banner