Fotbolti.net
09.03.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Fortune aftur til Stoke á láni (Staðfest)

Fortune aftur til Stoke á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur fengið varnarmanninn Jonathan Fortune aftur að láni frá Charlton en lánssamningurinn gildir út þetta tímabil.
Fortune sem er 26 ára kom til Stoke á láni í janúar eftir að Michael Duberry yfirgaf liðið og gekk til liðs við Reading.

Fortune stóð sig vel áður en að Charlton kallaði hann til baka á dögunum vegna mikilla meiðsla og leikbanna í vörninni en Hermann Hreiðarsson er á meðal þeirra sem hafa átt við meiðsli að stríða.

Stoke hefur núna hins vegar fengið Fortune að nýju en leikmaðurinn lék með Charlton gegn Watford um síðustu helgi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.