Fotbolti.net
09.03.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ungur danskur kantmaður til Charlton (Staðfest)

Ungur danskur kantmaður til Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Charlton hefur keypt danska U-21 árs landsliðsmanninn Martin Christensen á 250 þúsund pund frá Herfolge Boldklub en kaupverðið gæti hækkað síðar meir í 350 þúsund pund.
Christensen sem er 19 ára gamall mun ganga til liðs við Charlton í sumar en hann hefur gert fjögurra samning við enska liðið.

Hluti af samningi Charlton og Herfolge er einnig að liðin muni fara í samstarf, í þrjú ár til að byrja með en síðarnefnda liðið sem vann dönsku deildina árið 2000 þykir hafa gott unglingastarf.

Christensen mun hjá Charlton hitta fyrir tvo aðra danska leikmenn, kantmanninn Dennis Rommedahl og markvörðinn Mads Nielsen.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.