09.03.07 - 17:19
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Atli í Fjarðabyggð (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Fjarðabyggð úr fyrstu deild hefur fengið sóknarmanninn unga Guðmund Atla Steinþórsson frá Grindavík. Guðmundur lék æfingaleik með Fjarðabyggð á dögunum gegn Fylki en hann hefur nú fengið leikheimild með liðinu og er hann því löglegur gegn Þór í Lengjubikarnum á morgun.
Guðmundur Atli sem verður tvítugur í ár lék fjóra leiki með Grindavík í Landsbankadeildinni síðastliðið suimar og einn leik í VISA-bikarnum.
Áður lék hann með HK og BÍ en sumarið 2005 lék hann tvo leiki í fyrstu deildinni með Kópavogsfélaginu.
Áður lék hann með HK og BÍ en sumarið 2005 lék hann tvo leiki í fyrstu deildinni með Kópavogsfélaginu.
