09.03.07 - 22:39
Hafliði Breiðfjörð
Íslenskur landsliðsmaður til Real Betis (Staðfest)

Marko Pavlov fyrir leik með U19 ára íslenska landsliðinu.

Mynd: Úr einkasafni

Marko Pavlov leikmaður U19 ára landsliðs Íslands er genginn í raðir stórliðs Real Betis á Spáni en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í kvöld. Marko er 19 ára gamall og hefur verið búsettur á Íslandi frá því hann var tíu ára gamall er hann fluttist hingað með föður sínum, Dragi Pavlov sem hefur starfað við þjálfun hér á landi með Neista, Hetti og Stjörnunni.
Marko lék með Stjörnunni og hefur leikið 8 leiki með U19 ára landsliði Íslands og skorað í þeim eitt mark og auk þess 6 leiki með U17 ára landsliðinu. Hann gekk í raðir franska 2. deildarliðsins Caen árið 2005 en fór þaðan til Mallorca á Spáni þar sem hann gerði unglingasamning í fyrra.
Á Spáni lék hann með San Francisco sem er U-18 ára lið Real Mallorca. Real Mallorca vidi lána hann til þriðjudeildarliðs á næstu leiktíð allri en það hefði þýtt að hann hefði ekki fengið tækifæri á að brjótast inn í aðallið félagsins í gegnum varaliðið.
Real Betis sem hafði fylgst með honum allan tímann er hann var hjá Mallorca setti sig í samband við umboðsmann hans og sögðust vilja semja við leikmanninn.
Frá því var svo gengið í gær er Pavlov skrifaði undir þriggja ára samning við Real Betis en hann er þegar fluttur til Sevilla þar sem höfuðsstöðvar félagsins eru.
Hjá Betis mun hann leika með varaliðinu mun reyna að vinna sér sæti í aðalliðinu.