Hollendingurinn Leandro Fernandes Da Cunha er samkvæmt heimildum Fótbolta.net nálægt því að ganga í raðir Njarðvíkur. Samkvæmt heimildum á eftir að ganga frá nokkrum lausum endum áður en skiptin geta verið gerð opinber.
Fram kom í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í síðustu viku að Fernandes væri á reynslu hjá Njarðvík.
Hann er 26 ára miðjumaður sem er einnig með angólskt vegabréf. Hann á að baki yfir 40 leiki fyrir yngri landslið Hollands.
Fram kom í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í síðustu viku að Fernandes væri á reynslu hjá Njarðvík.
Hann er 26 ára miðjumaður sem er einnig með angólskt vegabréf. Hann á að baki yfir 40 leiki fyrir yngri landslið Hollands.
Hann er uppalinn hjá NEC og PSV í Hollandi. Árið 2018 fór hann til Juventus og spilaði þar með U19 og U23 liði félagsins. Hann hefur á meistaraflokksferlinum leikið með Fortuna Sittard og PEC Zwolle í Hollandi, Pescara á Ítalíu, Jerv í Noregi, Zalgiris í Litháen og síðast Dubai City FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Hjá Juventus spilaði hann með leikmönnum á borð við Nicolo Fagioli og Marko Pjaca. Í Hollandi og í hollensku landsliðunum var hann með leikmönnum á borð við Justin Kluivert, Tyrell Malacia, Matthijs de Ligt, Tahith Chong og Cody Gakpo og hjá Jerv spilaði hann með Erik Tobias Sandberg sem er leikmaður ÍA. Hann lék þá einn leik, eða öllu heldur nokkrar mínútur undir lok leiks, með Alberti Guðmundssyni þegar þeir voru í U21 liði PSV árið 2016.
Njarðvík, sem ætlar sér stóra hluti í Lengjudeildinni í sumar, hefur verið í miðjumannsleit frá því að Tómas Bjarki Jónsson, fyrirliði liðsins, sleit krossband í síðasta mánuði.
Athugasemdir

