09.05.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Gunnar Líndal í Þór (Staðfest)

Gunnar Líndal skutlar sér í leik með Þór sumarið 2006.

Mynd: Matthías Ægisson/Leiknir.com

Markvörðurinn Gunnar Líndal er genginn til liðs við Þór að nýju eftir að hafa leikið með Fram síðastliðið sumar.
Gunnar er uppalinn hjá Þór en hann gekk til liðs við Fram fyrir síðasta tímabil.
Hjá Fram var hann varamarkvörður og lék hann einungis einn leik með liðinu síðastliðið sumar, gegn Haukum í Visa-bikarnum.
Gunnar mun væntanlega berjast við Árna Kristinn Skaptason um markvarðarstöðuna hjá Þór en liðið mætir KS/Leiftri í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar næstkomandi þriðjudag.