09.05.08 - 14:28
Magnús Már Einarsson
Zoran Stojanovic í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan í fyrstu deild hefur fengið framherjann Zoran Stojanovic frá Serbíu.
Fyrst um sinn verður Zoran til skoðunar hjá Stjörnunni en hann hefur fengið leikheimild og getur því leikið með liðinu í fyrstu deildinni.
,,Við erum búnir að standa í þessu í svolítinn tíma og það verður spennandi að sjá hann," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar við Fótbolta.net í dag.
,,Hann verður hér til reynslu til að byrja með en er engu að síður kominn með leikheimild og vonandi eflir hann sóknarleikinn okkar ennþá frekar."
Zoran, sem er 33 ára gamall, getur leikið sinn fyrsta leik með Stjörnunni á mánudag en þá mætir liðið Njarðvík í fyrstu umferð fyrstu deildar.