Fotbolti.net
09.05.21 - 15:45
Aksentije Milisic

Þýskaland: Frankfurt missteig sig í baráttunni um topp fjóra

Þýskaland: Frankfurt missteig sig í baráttunni um topp fjóra
Canon

Mynd: Getty Images

Eintracht Frankfurt 1 - 1 Mainz
0-1 Karim Onisiwo ('11 )
1-1 Ajdin Hrustic ('85 )
Eintracht Frankfurt og Mainz áttust við í öðrum leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Frankfurt er í harðri baráttu við Dormund um fjórða sætið sem gefur rétt til þáttöku í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Mainz er sex stigum frá umspils fallsæti.

Gestirnir komust yfir á 11. mínútu leiksins þegar Karim Onisiwo skoraði. Það leit lengi vel út fyrir að þetta yrði eina mark leiksins.

Ajdin Hrustic náði að jafna metin þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Frankfurt reyndi allt sem það gat til að ná í stigin þrjú og komast í fjórða sæti deildarinnar en það tókst ekki.

Frankfurt er nú í fimmta sætinu, stigi á eftir Dortmund og þremur á eftir Wolfsburg. Mainz er í tólfta sæti deildarinnar.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern9+2021
2Dortmund9+921
3Freiburg9+1019
4RB Leipzig9+1418
5Leverkusen9+316
6Werder9+215
7Elversberg9-113
8Stuttgart9012
9Hoffenheim9-112
10Frankfurt9-512
11Hamburger9-1012
12Mainz9-110
13Paderborn9-310
14Augsburg909
15Köln9-49
16Union Berlin9-147
17Schalke 049-66
18Gladbach9-134
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.