Fotbolti.net
09.05.25 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gefur í skyn að Trent verði settur á bekkinn

Gefur í skyn að Trent verði settur á bekkinn
Canon

Mynd: EPA

Arne Slot, stjóri Liverpool, sagði frá því á fréttamannafundi í dag að það væru líkur á því að Trent Alexander-Arnold yrði ekki í byrjunarliði liðsins um helgina.

„Það verður sama ferli og í síðustu viku þegar kemur að liðsvalinu. Ef Conor hefði verið til taks þá hefði hann byrjað gegn Chelsea, svo það er möguleiki að hann byrji um helgina," sagði Slot um Conor Bradley.

Trent hefur ákveðið að framlengja ekki samninginn sinn við Liverpool og mun ganga í raðir Real Madrid í sumar. Eina spurningin í dag er hvort hann skipti til Real í tæka tíð til að spila á HM félagsliða.
Conor er Conor Bradley, hinn hægri bakvörðurinn í leikmannahópi Liverpool.

Liverpool mætir Arsenal í 36. umferð úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.