Fotbolti.net
09.06.06 - 15:34
Magnús Már Einarsson

HSV fær Kompany til að leysa van Buyten af (Staðfest)

Kompany koinn með treyju Hamburg SV.

Kompany koinn með treyju Hamburg SV.

Canon

Mynd: Getty Images

Hamburg SV hefur keypt varnarmanninn Vincent Kompany frá Anderlecht en belgíska liðið staðfesti þetta í dag. Hinn efnilegi Kompany mun leisa Daniel van Buyten af hólmi í vörn Hamburg en eins og við greindum frá er hann á leið til Bayern Munchen.
Kompany er einmitt félagi van Buyten í belgíska landsliðinu en Hamburg er talið fá um tíu milljónir evra fyrir þann síðarnefnda frá Bayern sem er met í sögu Hamburg.

Van Buyten lék vel í vörn Hamburg er liðið endaði í þriðja sæti í Bundesligunni og var eina liðið til að sigra Bayern tvívegis á síðustu leiktíð. Hamburg bindur því nú vonir um að Kompany nái að fylla skarð hans en hann hefur verið orðaður við mörg helstu stórlið Evrópu undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.