09.06.06 - 15:49
Magnús Már Einarsson
Sindri fær markvörð frá Slóveníu (Staðfest)

Úr leik Sindra og Árborgar fyrir ári síðan.

Mynd: Guðmundur Karl

Úr leik Sindra og Árborgar fyrir ári síðan.

Mynd: Guðmundur Karl
Sindri úr annarri deild hefur fengið slóvenska markvörðinn Matjaz Kastelic og mun hann væntanlega klára tímabilið með liðinu.
Markvörðurinn Nezir Ohran yfirgaf Sindra eftir tvær umferðir í sumar og fór til dótturfélags Örgryte í Svíþjóð. Í kjölfarið fengu Hornfirðingar markvörðinn Daníel Karlsson að láni frá Þrótti en nú er líklegt að hann leiki ekki meira með liðinu eftir komu Kastelic.
Hinn 22 ára gamli Kastelic er þegar kominn með leikheimild með Sindra og hann getur því leikið með liðinu gegn KS/Leiftri á Siglufirði á morgun.
Hinn 22 ára gamli Kastelic er þegar kominn með leikheimild með Sindra og hann getur því leikið með liðinu gegn KS/Leiftri á Siglufirði á morgun.
