Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 20:14
Ívan Guðjón Baldursson
Farinn aftur til Simbabve eftir fjögur ár hjá Vestra (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Silas Dylan Songani er búinn að fá félagaskipti til TelOne FC sem leikur í Simbabve eftir að hafa verið leikmaður Vestra á Ísafirði í fjögur ár.

Silas er samningslaus og fer á frjálsri sölu, en hann lék 91 leik á dvöl sinni hjá Vestra samkvæmt vefsíðu KSÍ.

Silas er 36 ára gamall sóknarleikmaður sem lék á sínum tíma fyrir Sönderjyske í efstu deild í Danmörku og er með ellefu A-landsleiki að baki fyrir Simbabve.

Hann er fenginn til TelOne FC til að hjálpa liðinu að snúa slæmu gengi við í efstu deild í Simbabve.

Silas gerði flotta hluti með Harare City í heimalandinu áður en hann var fenginn yfir í danska boltann fyrir tólf árum síðan, þegar hann var 24 ára gamall. Hann endaði í öðru sæti í kjörinu á besta leikmanni tímabilsins í Simbabve áður en hann hélt til Evrópu.

Silas lék svo fyrir FC Platinum árin 2020 og 2021 þegar liðið vann efstu deild í Simbabve.
Slapp
banner