Þrátt fyrir stórt 1-6 tap Íslands gegn heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli í kvöld var einn af ljósu punktum leiksins frammistaða Lindu Lífar Boama. Hún kom inn af bekknum í hálfleik og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í sínum fjórða landsleik.
Linda Líf kláraði færið sitt einstaklega snyrtilega eftir góða sendingu frá Karólínu Leu.
„Ég fékk bara sendingu og það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu. Gott spil hjá okkur og góð refsing,“ sagði Linda þegar hún var spurð út í markið.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 6 Spánn
Linda kom inn á sem varamaður þegar Ísland var þremur mörkum undir og segir það hafa verið hlutverk þeirra sem komu af bekknum að færa liðinu nýja orku.
„Að koma inn 3-0 undir, það þarf bara að koma með auka orku og auka trú og ég reyndi að gera það eins vel og ég gat. Ég held að allir sem komu inn á í dag gáfu liðinu smá auka orku.“
Hún taldi íslenska liðið hafa skapað sér ágætis stöður eftir því sem leið á leikinn.
„Við vorum að koma okkur í svona skemmtilegar stöður, svona hálffæri, þegar leið á seinni hálfleikinn.“
„Mér fannst þetta svona skemmtilegur bolti þannig séð. Það var mikið öskrað og við reyndum eins og við gátum.“
Aðspurð hvort Spánn væri besta lið sem hún hefði mætt svaraði hún án þess að hika.
„Já, bara klárt.“
„Maður reynir að sýna þeim ekki eins mikla virðingu á vellinum. Gott lið en við gáfum þeim líka því miður bara helling.“
Framundan er stóra verkefnið í haust þar sem Ísland fer í umspil um laust sæti á HM. Linda segir hópinn og alla í kringum liðið mæta með bullandi trú í þá tvo leiki.
„Algjörlega. Það er ekki bara ég, það eru bara allir sem koma að þessu við. Það er bara planið,“ sagði markaskorari kvöldsins að lokum.
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan






















