Ítalski þjálfarinn Vincenzo Italiano er búinn að semja við tyrkneska stórveldið Besiktas um að þjálfa aðalliðið næstu tvö árin.
Italiano hefur síðustu tvö árin þjálfað Bologna við góðan orðstír en þar áður var hann við stjórnvölinn hjá Fiorentina.
Besiktas endaði í fjórða sæti tyrknesku deildarinnar á nýliðinni leiktíð og öðlaðist þar með þátttökurétt í forkeppni Evrópudeildarinnar sem hefst í sumar.
Stjórnendur vilja sjá félagið veita toppliðum Galatasaray og Fenerbahce raunverulega samkeppni enda má finna leikmenn á borð við Orkun Köckü, Emmanuel Agbadou, El Bilal Touré, Wilfred Ndidi, Jota Silva og Felix Uduokhai í öflugum leikmannahópi.
Italiano tekur við af Sergen Yalcin sem er goðsögn hjá Besiktas en náði ekki nægilega góðum árangri með liðið.
???????? ???????????????????????????????????? ???????????????????? ???????????? ???????????????????? ????????????????, ???????????????????????????????? ????????????????????????????????.#ForzaBe?ikta? ???? pic.twitter.com/ybs6GkRGEF
— Be?ikta? JK (@Besiktas) June 6, 2026



