„Eins og er á Íslandi þá erum við með leikmenn eins og Gylfa Sig og einhvern rafvirkja í vinstri bakverði.“
Sigurður Bjartur Hallsson gekk til liðs við spænska félagið Merida í upphafi árs. Merida leikur í spænsku C deildinni og endaði í tíunda sæti á tímabilinu.
Sigurður kom til félagsins eftir frábært sumar með FH í Bestu deildinni, þar sem hann skoraði sextán mörk.
Hann leit við á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddi fyrstu mánuðina á Spáni.
Sigurður kom til félagsins eftir frábært sumar með FH í Bestu deildinni, þar sem hann skoraði sextán mörk.
Hann leit við á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddi fyrstu mánuðina á Spáni.
Á pari en stefnir á meira
„Ég myndi segja að fyrsta hálfa tímabilið hafi verið á pari. Þetta var engin flugeldasýning og engin vonbrigði heldur. Algjörlega á pari. Stefnan er sett á að gera betur á næsta tímabili,“ segir Sigurður.
Samkvæmt Transfermarkt skoraði Sigurður fjögur mörk í sautján leikjum með félaginu.
Færri rafvirkjar á Spáni
Er mikill munur á Bestu deildinni og spænsku C-deildinni?
„Ég myndi segja að geta leikmanna væri mun jafnari en í Bestu deildinni. Það er lítill munur á besta leikmanni vallarins og þeim versta.
Eins og er á Íslandi þá erum við með leikmenn eins og Gylfa Sig og einhvern rafvirkja í vinstri bakverði eða annars staðar á vellinum. Það er mikill munur getustigi þessara leikmanna,“ sagði Sigurður jafnframt.
Stólar ekki á veitingastaðina
Þurftir þú að aðlagast mikið eftir að þú fórst út?
„Alveg klárlega, þetta er töluvert öðruvísi fótbolti. Lokaðri leikir og taktískari, maður þarf að vera með fullan fókus þegar maður fær færin. Það gæti verið eina færið sem þú færð í leiknum.“
„Eins líka með lifnaðarhætti, kvöldmaturinn er borðaður klukkan níu á kvöldin. Maður þurfti bara að vera elda sjálfur bara. Gat ekki stólað á veitingastaðina.“
Mikill fjölskylduklúbbur
„Þetta er mikill fjölskylduklúbbur í uppbyggingu. Risastórt starfslið, þetta er algjört batterí og mikið í þetta lagt. Mikill metnaður.“
„Töluvert stærri umgjörð en á Íslandi. Lengri dagar líka, maður mætir níu á morgnana og er ekkert laus fyrr en eftir tvö, þrjú á daginn. Þetta er bara eins og hefðbundinn vinnudagur,“ segir Sigurður að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
























