Franski þjálfarinn Pierre Sage er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Crystal Palace.
Boltinn er hjá Palace sem er komið í viðræður við Lens til að leysa Sage undan samningi, en hann á ennþá tvö ár eftir.
Sage tók við Lens í fyrrasumar og átti magnað fyrsta tímabil við stjórnvölinn. Lærlingar hans reyndust afar óvænt þeir einu sem veittu Paris Saint-Germain einhvern snefil af samkeppni í titilbaráttunni og leiddi Sage þá til sögulegs sigurs í franska bikarnum.
Lens vann bikarinn í fyrsta sinn í sögu sinni eftir að hafa þrisvar sinnum endað í öðru sæti í gegnum tíðina.
Palace er í leit að arftaka fyrir Oliver Glasner og var einnig að skoða Frank Lampard og fleiri kosti en Sage virðist hafa orðið fyrir vali stjórnenda.
03.06.2026 18:28
Crystal Palace að ná samkomulagi við Sage




