Fotbolti.net
29.06.26 - 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Nablinn spáir í leiki dagsins á HM

Nablinn að störfum.

Nablinn að störfum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag halda 32-liða úrslitin á HM áfram. Það eru mjög áhugaverðir leikir framundan.

Við fengum Andra Má Eggertsson, betur þekktan sem Nablann, til að spá í spilin fyrir næstu leiki.
Brasilía 2 - 0 Japan (17:00)
Japanir hafa verið flottir á þessu móti og komið á óvart en Brassarnir með sjóðheitan Cunha í broddi fylkingar vinna þennan leik 2-0 þar sem hann skorar bæði mörkin.

Þýskaland 3 - 1 Paragvæ (20:30)
Þetta verður sannfærandi sigur Þjóðverja sem komast í 3-0 og leka inn einu marki undir restina. Ekta leikur sem Musiala skorar í.

Holland 1 - 1 Marokkó (01:00)
Vampíruvaktin verður tekin alla leið í þessum leik sem mun fara alla leið í vítaspyrnukeppni. Mazraoui mun koma Marokkó yfir en Brobbey mun jafna og á endanum verða það þeir appelsínugulu sem fara áfram í sextán liða úrslitin.
Matheus Cunha.

Matheus Cunha.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.