Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 07:25
Elvar Geir Magnússon
Spánn sigraði Perú - Oyarzabal skorað í sex síðustu landsleikjum sínum
Mikel Oyarzabal í leiknum gegn Perú.
Mikel Oyarzabal í leiknum gegn Perú.
Mynd: EPA
Spánn vann Perú 3-1 í vináttulandsleik sem fram fór í Mexíkó í nótt. Ríkjandi Evrópumeistarar Spánar eru eitt sigurstranglegasta liðið fyrir heimsmeistaramótið sem hefst á fimmtudaginn.

Mikel Oyarzabal, leikmaður Real Sociedad, skoraði fyrsta mark leiksins áður en Pedri, leikmaðir Barcelona, tvöfaldaði forystuna eftir fyrirgjöf Ferran Torres.

Yeremy Pino, leikmaður Crystal Palace, kom Spáni í 3-0 eftir markmannsmistök en Jairo Velez skoraði svo sárabótamark fyrir Perú.

Oyarzabal hefur skorað í sex síðustu landsleikjum sem hann hefur spilað og vonast til að binda sjöunda leikinn við þegar Spánn hefur leik á HM gegn Grænhöfðaeyjum. Sádi-Arabía og Úrúgvæ eru einnig í riðlinum.

Perú tókst hinsvegar ekki að komast á HM.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner