Fotbolti.net
09.07.07 - 17:49
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Djibril Cisse til Marseille (Staðfest)

Cisse var í láni hjá Marseille á síðasta tímabili

Cisse var í láni hjá Marseille á síðasta tímabili

Canon

Mynd: Getty Images

Marseille hefur gengið frá kaupunum á franska landsliðsmanninum Djibril Cisse frá Liverpool. Þessu greindi franska félagið frá í dag.
Þessi 25 ára gamli leikmaður, sem kostaði Liverpool fjórtán milljónir punda þegar hann kom frá Auxerre árið 2004, var í láni hjá Marseille á síðasta tímabili.

Talið var að Bolton, Portsmouth og West Ham höfðu áhuga á Cisse en umboðsmaður hans, Ranko Stojic, sagði þó í síðasta mánuði að Marseille væri val leikmannsins.

Marseille, sem fékk til sín Bolo Zenden frá Liverpool fyrr í vikunni, munu spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili eftir góðan árangur í frönsku deildinni á síðasta tímabili.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.