Fotbolti.net
09.07.17 - 19:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Stefán: Það var ekki til kvíði fyrir þessum leik!

Auglýsing
Óli Stefán er að ná mögnuðum árangri með Grindavík.

Óli Stefán er að ná mögnuðum árangri með Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var að vonum gríðarlega ánægður eftir 2-1 sigur á KA í Pepsi-deildinni í dag.

Óli hefur gjarnan talað um það að 22 stig muni bjarga liðinu frá falli. Grindavík er eftir tíu leiki á toppi deildarinnar með 21 stig, en hann ætlar þrátt fyrir það ekki að setja önnur markmið strax.
„Fyrsta markmið er ekki komið,\" sagði Óli. „Við einbeitum okkur á það, en núna breyttum við örlítið markmiðunum, við ætlum að fókusa á að reyna að ná þeim í fyrri umferð.\"

„Þessi tafla skiptir mig svo ofboðslega litlu máli núna, ég spái ekki einu sinni í þetta.\"

Óli Stefán er gríðarlega ánægður með hópinn hjá sér.

„Það er gríðarlegur karakter í þessu liði. Þegar ég var að setja þennan leik upp fyrr í vikunni, þá setti ég þetta svona upp fyrir þá, það eru vandræði, við reynum okkar besta, það lið sem fer inn á völlinn er besta liðið sem við bjóðum upp á, það gefur allt í þetta eins og þeir gerðu og mér hlakkaði ofboðslega til, það var ekki til kvíði fyrir þessum leik!\" sagði hann.

Það var stuð í stúkunni í Grindavík í dag.

„Þetta er að koma. Ég er þakklátur þessu fólki sem er til í að taka þátt í þessu með okkur. Við þurfum mikið á þessu að halda.\"

Viðtalið má í sjónvarpinu hér að ofan, en þar ræðir Óli Stefán m.a. um félagsskiptagluggann sem er framundan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.