Fotbolti.net
19.07.26 - 12:04
Brynjar Ingi Erluson

„Sýnir að hann er leikmaður sem er tilbúinn að leggja allt í sölurnar“

Gyrðir Hrafn í leiknum gegn Víkingum

Gyrðir Hrafn í leiknum gegn Víkingum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Einar Gunnarsson hrósaði Gyrði Hrafni Guðbrandssyni í hástert eftir frammistöðu hans í 2-1 sigri Þórs á Íslandsmeisturum Víkings um helgina.
Besta deildin: Íslandsmeistararnir töpuðu á Akureyri
TENGT EFNI

Besta deildin: Íslandsmeistararnir töpuðu á Akureyri

Aron Einar sneri aftur heim í Þór á dögunum og lék sinn fyrsta leik gegn Víkingi, en Gyrðir kom til félagsins á láni frá KR.

Báðir áttu frábæran leik fyrir Þórsara sem voru fyrstir til að vinna Víkinga síðan 10. ágúst á síðasta ári. Gyrðir leysti fjölmörg hlutverk á vellinum og gerði það af stakri snilld, á meðan Aron kom inn með mikla talanda, stýrði mönnum og færði ferska vinda inn í hópinn.

„Eiginlega fullkomin frumraun. Leysti þrjár stöður og skilaði frábæru dagsverki. Nafnið hans var komið í þetta box áður en hann skoraði annað mark Þórs,“ skrifaði Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, um Gyrði sem var valinn maður leiksins.

Aron Einar var fenginn til þess að ræða innkomu Gyrðis í liðið þar sem hann fagnaði innkomu hans.

„Stórkostlegt. Hann spilaði hægri bakvörð, miðvörð og sexu, sem sýnir bara að þetta er leikmaður sem getur spilað margar stöður og er tilbúinn að leggja allt í sölurnar til að koma klúbbnum upp. Við höfum svo sannarlega þurft á svona manni að halda og virkilega gott 'signing' að fá hann í Þorpið,“ sagði Aron Einar við Fótbolta.net.

Gyrðir spilaði sex deildarleiki með KR-ingum á tímabilinu og einn bikarleik. Hann er uppalinn í KR en einnig spilað með Leikni og FH á ferli sínum.
„Sýnir að hann er leikmaður sem er tilbúinn að leggja allt í sölurnar“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Einar fer yfir stöðuna: Gæti verið farinn eftir tvær vikur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.