Fotbolti.net
09.07.20 - 21:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Pogba: Þetta eru Manchester United frammistöður

Pogba hefur verið mikið meiddur en skoraði nú eftir 453 daga þurrk.

Pogba hefur verið mikið meiddur en skoraði nú eftir 453 daga þurrk.

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Pogba skoraði sitt fyrsta mark í kvöld eftir 453 daga markaþurrk. Markið var þriðja mark leiksins í 0-3 útisigri á Aston Villa. Pogba var í viðtali við <i>Sky Sports</i> í kvöld.

<i>„Við erum mjög ánægðir með okkur því við vitum að við þurfum að halda áfram. Við ræddum það fyrir leikinn að við yrðum að halda áfram á sömu línu. Frammistöður síðustu vikna eru Manchester United frammistöður. Við verðum samt að halda áfram því það er hellings vinna eftir,"</i> sagði Pogba.
Pogba var spurður út í ungstirnið Mason Greenwood sem skoraði annað mark leiksins í kvöld.

„Ég elska að horfa á hann spila, hann leggur mikið á sig og hann á eftir að ná lengra, hann er mjög hæfileikaríkur."

„Við eigum okkur tvö markmið þetta tímabilið, að vinna Evrópudeildina og ensku bikarkeppnina, einbeitingin er þar,"
sagði Pogba að lokum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle508
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Nott. Forest6-35
15Aston Villa6-55
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.