09.08.06 - 06:15
Magnús Már Einarsson
Mertesacker til Werder Bremen (Staðfest)

Mertesacker ánægður með búning Werder Bremen.

Mynd: Getty Images

Werder Bremen hefur keypt varnarmanninn Per Mertesacker frá Hannover 96 á 5 milljónir evra og hefur þessi 21 árs leikmaður sem gerði fína hluti á HM gert fjögurra ára samning við Bremen.
,,Hver sem er svona ungur og getur spilað á HM getur styrkt okkur frá byrjun, hann hefur mikla hæfileika," sagði Thomas Schaaf þjálfari Werder Bremen sem getur ekki beðið eftir að Mertesacker jafni sig af ökklameiðslum og geti byrjað að spila með Werder Bremen.
Mertesacker vildi komast til Werder Bremen til að geta spilað í Evrópukeppninni en hann átti tvö ár eftir af samningi sínum við Hannover. Hluti af samningi liðanna felur það í sér að varnarmaðurinn Frank Fahrenhorst fer til Hannover í staðinn en hann hafði áður hafnað þeim möguleika.
Eftir þriggja mánaða samningaviðræður ákvað Fahrenhorst svo að fara til Hannover en þessi 28 ára gamli leikmaður fær um 500 þúsund evrur í sinn hlut fyrir það.