09.08.06 - 18:13
Magnús Már Einarsson
Watford fær efnilegan Ungverja (Staðfest)

Marlon King fær nýjan liðsfélaga.

Mynd: Getty Images

Marlon King fær nýjan liðsfélaga.

Mynd: Getty Images
Watford hefur keypt ungverska framherjann Tamas Priskin frá Gyori ETO fyrir óuppgefið fé en Aidy Boothroyd stjóri enska liðsins ákvað að kaupa leikmanninn eftir að hann stóð sig vel á reynsluæfingum hjá félaginu.
Priskin sem er tvítugur á þrjá landsleiki að baki fyrir Ungverja en hann er fjórði leikmaðurinn sem Boothroyd fær til Watford síðan að liðið vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vör.
,,Allir vita að enska úrvalsdeildin er besta deildin til að spila fótboltann þinn í. Það er ekkert betra en Watford fyrir mig til að halda áfram að bæta mig sem leikmaður. Ég er mjög spenntur," sagði Priskin við heimasíðu Watford.