09.08.07 - 13:01
Magnús Már Einarsson
Pele til WBA (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion úr ensku Championship deildinni hefur keypt varnar og miðjumanninn Pele frá Southampton á eina milljón punda.
Pele kom til Southampton frá portúgalska félaginu Belenenses síðastliðið sumar og lék vel með Dýrlingunum á síðasta tímabili.
Pele sem er 29 ára gamall gerði tveggja ára samning við WBA með möguleika á framlengingu.
,,Við erum ánægðir með að hafa krækt í leikmann sem fangaði athygli okkar hjá Southampton á síðasta leiktíð. Pele mun koma með reynslu og gæði," sagði Tony Mowbray stjóri WBA við heimasíðu félagsins.

Heimild: Sky