09.08.07 - 18:10
Sindri Þór Þorgeirsson
Charles Itandje til Liverpool (Staðfest)

Itandje er hér í leik með Lens

Mynd: Getty Images

Itandje er hér í leik með Lens

Mynd: Getty Images
Liverpool hafa gengið frá kaupunum á fyrrum franska U-21 árs landsliðsmarkverðinum Charles Itandje frá franska liðinu Lens og mun hann því vera varamarkvörður fyrir Spánverjann skemmtilega Jose Manuel Reina hjá Liverpool.
Nú lítur allt út fyrir að Scott Carson núverandi varamarkvörður Liverpool sé á förum til enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa á láni og því fóru Rafa Benitez og félagar í að leita að nýjum varamarkverði fyrir liðið, hann virðist vera fundinn og því ætti Carson að geta farið til Villa.
Charles Itandje sem er 24 ára lék með Lens í sex ár og á því tímabili lék hann 170 leiki fyrir félagið eftir að hafa komið til liðsins frá Red Star FC 93. Á vefsíðu Lens höfðu forsvarsmenn liðsins ekkert nema gott að segja um leikmanninn.
,,Hann yfirgefur Lens eftir sex ár af góðri og taustri þjónustu. Við óskum honum alls hins besta."

Heimild: Heimasíða UEFA