Rogério, Tomás og Cerny til Wolfsburg (Staðfest)

Tomás kom að 7 mörkum í 27 leikjum í efstu deild með Stuttgart á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Rogerio spilaði 156 leiki á sex árum hjá Sassuolo.

Mynd: EPA

Tomás kom að 7 mörkum í 27 leikjum í efstu deild með Stuttgart á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA
Það er mikið umbreytingarsumar hjá þýska félaginu Wolfsburg sem hefur verið að kaupa og selja þónokkuð af leikmönnum í sumar.
Félagið er búið að fá um 70 milljónir evra í kassann fyrir Micky van de Ven og Felix Nmecha sem gengu til liðs við Tottenham og Borussia Dortmund. Auk þess er félagið búið að missa menn á borð við Omar Marmoush, Paulo Otávio og Martin Pongracic.
Wolfsburg þarf því að styrkja hópinn sinn til muna fyrir komandi átök í þýsku deildinni og er félagið búið að kynna nokkra nýja leikmenn.
Vinstri bakvörðurinn Rogério kemur frá Sassuolo fyrir um 6 milljónir evra og tekur stöðu samlanda sins Otávio, sem er farinn til Al-Sadd á frjálsri sölu.
Tiago Tomás, U21 landsliðsmaður Portúgal, er kominn fyrir 8 milljónir evra. Hann er fjölhæfur sóknarmaður sem á að fylla í skarðið fyrir Marmoush sem er farinn til Eintracht Frankfurt á frjálsri sölu.
Þá eru miðverðirnir Cédric Zesiger og Mortiz Jenz einnig komnir auk hægri kantmannsins Vaclav Cerny. Zesiger var lykilmaður hjá Young Boys í Sviss á meðan Jenz hefur stoppað við hjá Schalke, Celtic og Lorient eftir að hafa verið í unglingaakademíu Fulham frá 2015 til 2020.
Cerny átti frábært tímabil með Alfons Sampsted og félögum í FC Twente í hollenska boltanum þar sem hann kom að 28 mörkum í 41 leik í öllum keppnum.
Búast má við að Wolfsburg kaupi að minnsta kosti eitt stórt nafn áður en sumarglugginn klárast. Liðið endaði einu stigi frá Evrópusæti á síðustu leiktíð.

Rogerio spilaði 156 leiki á sex árum hjá Sassuolo.

Mynd: EPA




