Fotbolti.net
09.08.26 - 21:16
Sigurjón Árni Torfason

Siggi Höskulds: Missir ástina á fótbolta að taka þátt í svona leik

Auglýsing
Siggi var pirraður eftir leik.

Siggi var pirraður eftir leik.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Þór heimsótti ÍA í 18 umferð Bestu deildar karla núna í kvöld. Skagamenn voru betri aðilinn megnið af leiknum, leikurinn endaði með 2-0 sigri ÍA. Fótbolti.net voru mættir á Akranes og ræddu við Sigga eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Þór
„Pirraður að það sé fótbolti einhvern veginn svona spilaður ennþá 2026, að svona fótboltaleikir fari fram. Þetta er ekki fótboltaleikur, þetta er bara einhver viðburður hérna sem að það að taka þátt í þessu lætur mann eiginlega bara missa ástina á leiknum.”

Siggi var pirraður eftir leik, og þá aðallega hvernig leikurinn var spilaður.

„Það er varla sent á milli og það er bara bombað upp og bæði lið gerðu það, við tókum bara þátt í því. En bara hundleiðinlegur leikur frá upphafi til enda og bara „you fall out of love of the game“ að taka þátt í þessu."

Ásbjörn Líndal átti að byrja leikinn en hann meiddist í upphitun og gat ekki tekið þátt í dag.

„Hann var eitthvað smá tæpur, búinn að vera eitthvað smá tæpur þarna í mjöðm og nára. Þá bara fór hann að fara að teygja sig og rann aðeins til í grasinu hérna fyrir leik og fékk einhvern slink á þetta sem við bjuggumst við að væri alveg hundrað prósent í lagi. Því miður, þá þurftum við að taka hann út."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.