09.09.05 - 10:08
Magnús Már Einarsson
Lisbie til Norwich á láni (Staðfest)




1.deildarlið Norwich hefur fengið sóknarmanninn Kevin Lisbie að láni frá Charlton. Þessi 26 ára gamli Jamaíkamaður fer beint inn í leikmannahóp Norwich sem mætir Plymouth á morgun.
Lisbie hefur skorað 19 mörk í 67 leikjum hjá Charlton og þá hefur hann leikið 93 leiki í viðbót með liðinu sem varamaður. Hann mun styrkja sóknarlínu Norwich en liðið er án hins meidda Leon McKenzie og Darren Huckerby sem er í leikbanni.
