Kári Árna: Spekúlantar sem hafa ekki hundsvit á þessu
Auglýsing

Kári Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason, miðvörður íslenska landsliðsins, viðurkennir að varnarleikurinn hefði mátt vera betri í 4-4 jafntefli Íslands gegn Sviss í undankeppni HM 2014 á föstudaginn.
Ísland lenti 4-1 undir, meðal annars vegna nokkurra ódýrra marka, en jafnaði á ótrúlegan hátt í 4-4.
Kári viðurkenndi að það hefði verið of mikið að fá á sig fjögur mörk, en vill þó meina að ekki sé bara hægt að skella sökinni á öftustu línu.
,,Eins og við Raggi vorum að tala um, þá hefðum við frekar viljað að þessi leikur hefði endað 0-0 heldur en 4-4. Það hefði litið aðeins betur út fyrir okkur. En ég held að það sé fínt að fá smá svona sjálfstraust í sóknarleikinn, þannig að við förum jákvæðir inn í næsta leik,“ sagði Kári við Fótbolta.net.
,,Það er mikil hreyfing á þeim og þegar við misstum boltann komu þeir oft fjórir til fimm á okkur tvo þrjá, og þetta var ekkert auðvelt. Þetta var ekki „orthodox“, þú varst ekkert að dekka einhvern senter, heldur voru þeir meira bara út um allt. Maður þurfti alltaf að vera að laga sig að aðstæðum,“ sagði Kári.
,,Þetta eru nú oft einhverjir voðalegir spekúlantar sem eru að fara yfir þetta, sem hafa ekki hundsvit á þessu, en við tökum það á okkur að við eigum að reyna að halda „clean sheet“ þarna, en þetta er bara aðeins flóknara en það. Maður reynir alltaf sitt besta, en þegar maður reynir að skora eru oft of margir komnir fram og of graðir í að skora, og þá erum við kannski skildir of fáir eftir.“
„Það þarf ekki nema að missa boltann einu sinni á miðsvæðinu og þá koma þeir bara beint á öftustu línu og ef þeir eru að yfirmanna okkur þar, þá er lítið hægt að gera gegn mönnum af þessu kalíberi. Oft er maður heppinn, við vorum að vísu heppnir í fyrri hálfleik því þetta hefði getað orðið stærra. En mér fannst þetta lagast í seinni hálfleik og við héldum boltanum betur.“