Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. september 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Jibril Abubakar farinn frá KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sóknarmaðurinn Jibril Abubakar er farinn frá KA aftur til FC Midtjylland í Danmörku.

Hinn tvítugi Jibril kom til KA á láni frá Midtjylland síðastliðinn vetur.

Jibril hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði KA en hann hefur einungis komið við sögu í þremur leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Danski varnarmaðurinn Mikkel Qvist klárar hins vegar tímabilið með KA.

Qvist átti að vera á láni frá Horsens út ágúst en lánssamningurinn hefur verið framlengdur út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner