11.09.26 - 18:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Aftureldingar kemur á óvart - „Smá Mourinho í Magga"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aftureldng og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli í kvöld.
Byrjunarlið Aftureldingar kemur mörgum á óvart en Magnús Már Einarsson talaði um að Elmar Kári Enesson Cogic hafi verið að kljást við meiðsli í aðdraganda leiksins en hann byrjar. Þá er reynsluboltinn Birkir Már Sævarsson á bekknum.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 1 Breiðablik
Albert Brynjar Ingason og Bjarni Guðjónsson, sérfræðingar á RÚV, ræddu um byrjunarlið Aftureldingar fyrir leikinn.
„Kannski er Maggi hræddur við að vera með tvo sókndjarfa bakverði. Elmar, er ekki smá Mourinho í Magga þarna? Búinn að tala um það alla vikuna að hann sé ekki klár," sagði Albert.
„Mér finnst þetta sérstakt með Birki. Þótt hann sé sókndjarfur þá tókst honum ágætlega að verjast gegn andstæðingum á þessum velli nokkuð mörg ár í röð. Hann talaði um að það væri gott að eiga hann inni en þá væri líka gott að hafa hann inn á," sagði Bjarni.