Fotbolti.net
11.09.26 - 18:46
Haraldur Örn Haraldsson

Sigurpáll Melberg: Erum komnir til að taka yfir

Auglýsing
Sigurpáll Melberg: Erum komnir til að taka yfir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Sigurpáll Melberg Pálsson fyrrum leikmaður Aftureldingar var mættur í Minigarðinn til að hita upp fyrir úrslitaleik liðsins gegn Breiðablik í Mjólkurbikarnum.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 1 Breiðablik

„Stemning er bara gríðarleg, ég held að hálfur Mosfellsbærinn sé mættur hér í Minigarðinn, þetta getur ekki endað annað en vel," sagði Sigurpáll.

Afturelding hefur selt fleiri miða á Laugardalsvöllinn en Breiðablik og því ætti að heyrast vel í Mosfellingum í stúkunni.

„Mér finnst það ekkert skrítið, það er búið að vera djöfulsins stemning í öllum Mosfellsbænum. Við erum búnir að tryggja okkur upp í túninu heima, við erum bara komnir til að taka yfir," sagði Sigurpáll.

Sigurpáll þekkir vel til hvernig menn eru stemndir innan hópsins og getur því sagt vel frá því.

„Ég held að menn séu bara vel stilltir, klárir í leikinn. Ég held þeir séu bara að fara inn á völlinn, njóta leiksins, hafa gaman, og eins og þeir hafa verið í allt sumar, spila frábæran bolta," sagði Sigurpáll.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.