Fotbolti.net
09.10.26 - 09:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eggert Gunnþór stýrir Austfjarðaskútunni áfram

Helgi Freyr Ólason og Jóhann Ragnar Benediktsson fulltrúar nýs meistaraflokksráðs KFA með Eggerti á myndinni.

Helgi Freyr Ólason og Jóhann Ragnar Benediktsson fulltrúar nýs meistaraflokksráðs KFA með Eggerti á myndinni.

Canon

Mynd: KFA

Eggert Gunnþór Jónsson hefur skrifað undir áframhaldandi samning við KFA og mun áfram þjálfa liðið sem spilar í 2. deild.

„Ég er virkilega ánægður með að hafa framlengt. Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka mikið til að halda áfram þeirri vinnu sem við höfum lagt grunninn að. Spenntur fyrir næsta tímabili og markmiðið er eins og alltaf að gera betur," sagði Eggert eftir undirrun samningsins.
Eggert tók við liðinu eftir tímabilið 2024, hefur verið spilandi þjálfari liðsins undanfarin tímabil. Þessi fyrrum landsliðs- og atvinnumaður er uppalinn í Fjarðabyggð.

KFA endaði í 7. sæti 2. deildar í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.