09.10.26 - 10:37
Elvar Geir Magnússon
Tumi Fannar í Val (Staðfest)

Tumi Fannar í Fjósinu á Hlíðarenda.

Mynd: Valur

Tumi Fannar í Fjósinu á Hlíðarenda.

Mynd: Valur
Tumi Fannar Gunnarsson hefur gert þriggja ára samning við Val, út tímabilið 2029.
Tumi Fannar er 21 árs miðjumaður sem er keyptur frá Fylki og getur leyst margar stöður á vellinum.
Í slúðurpakkanum sem birtist í gær segir að Valur hafi nýtt sér ákvæði í samningi Tuma sem varð virkt þar sem Fylkir komst ekki upp í Bestu deildina. Kaupverðið er því ekki talið hátt.

TENGT EFNI
Valur að kaupa Tuma Fannar
„Hann er uppalinn hjá Breiðabliki en lék með Fylki í sumar, átti þar gott tímabil og sýndi að hann er klár í að taka næsta skref. Knattspyrnudeild Vals býður Tuma Fannar hjartanlega velkominn á Hlíðarenda," segir í tilkynningu Vals.
Halldór Árnason tekur við Val að tímabilinu loknu og þekkir Tuma vel frá tíma þeirra saman hjá Breiðabliki. Tumi lék alls 20 leiki fyrir Breiðablik, þar af 18 undir stjórn Halldórs.

Tumi í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð