09.11.06 - 21:21
Magnús Már Einarsson
William Geir í Fjarðabyggð (Staðfest)

Mynd: leiftur.is

Mynd: leiftur.is
Fjarðabyggð úr fyrstu deild karla hefur fengið liðsstyrk en vinstri kantmaðurinn William Geir Þorsteinsson hefur gert eins árs samning við félagið.
William Geir sem er 23 ára er uppalinn hjá Leiftri en í annarri deildinni síðastliðið sumar skoraði hann þrjú mörk í sautján leikjum. ,,Ég vil vera eins og Paul Scholes, vera bara hljóðlátur og láta verkin tala," sagði William við Fótbolti.net í kvöld.
Fjarðabyggð sem sigraði aðra deildina síðastliðið sumar hefur einnig framlengt samning sinn við varnarmanninn Andra Þór Magnússon til ársins 2008 en hann var valinn efnilegastur á lokahófi félagsins á dögunum.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar