Fotbolti.net
09.11.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Hafsteinn Rúnar Helgason í Stjörnuna (Staðfest)

Hafsteinn Rúnar Helgason í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Pedromyndir - Þórhallur

Stjarnan úr fyrstu deild hefur fengið Hafstein Rúnar Helgason fyrirliða Reynis Sandgerði til liðs við sig.
Hafsteinn sem er 22 ára varnarmaður gerði tveggja ára samning við Stjörnuna í gær með möguleika á framlengingu en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í gærkvöldi.

,,Mér líst mjög vel á Stjörnuna. Þetta er spennandi klúbbur, ég þekki vel til Bjarna (Jóhannssonar) og hann er flottur þjálfari. Það verður örugglega mjög gaman að spila með Stjörnunni og þeir ætla sér stóra hluti í fyrstu deildinni," sagði Hafsteinn við Fótbolta.net á dögunum.

Hafsteinn hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Reynis undanfarin sex ár en í sumar skoraði hann eitt mark í nítján leikjum með liðinu í fyrstu deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.