Fotbolti.net
09.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jóhannes Karl í Fjölni (Staðfest)

Jóhannes Karl í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

Jóhannes Karl Bárðarson er genginn til liðs við Fjölni frá Þrótti Vogum og skrifar undir tveggja ára samning.

Jóhannes Karl er fæddur árið 2003 og er uppalinn í Víkingi. Hann færði sig í Ægi árið 2023 og fór síðan til Þróttar sama sumar.
Hann spilaði alla 22 leikina með Þrótti í 2. deild síðasta sumar þar sem liðið bjargaði sér frá falli eftir dramatíska lokaumferð.

Fjölnir hafnaði í 6. sæti 2. deildar síðasta sumar.

Félagið hefur einnig tilkynnt að Ýmir Hjálmsson hafi framlengt samning sinn um tvö ár. Hann kom til liðsins um mitt sumar í ár frá Völsungi og spilaði átta leiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.