08.11.26 - 16:11
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Mikael Egill skoraði gegn Milan

Mikael Egill í leiknum gegn Milan

Mynd: EPA

Mikael Egill í leiknum gegn Milan

Mynd: EPA
Mikael Egill Ellertsson var á skotskónum í 2-1 tapi Genoa gegn Ruben Amorim og lærisveinum hans í AC Milan í Seríu A í dag.
Mílanó-menn komu sér í þægilega tveggja marka forystu á fyrstu tuttugu mínútunum með mörkum frá Alphadjo Cisse, sem hefur komið með ferska vinda inn í liðið, og Christian Pulisic.
Undir lok leiksins gaf Mikael Egill heimamönnum líflínu þegar hann lét vaða af 25 metra færi eftir að aukaspyrna Stephan El Shaarawy fór í vegginn og til Mikaels sem skaut honum af varnarmanni og framhjá Mike Maignan í markinu. Annað mark Mikaels á tímabilinu.
Því miður fyrir Genoa tókst liðinu ekki að jafna metin og fögnuðu Mílanó-menn því 2-1 sigri.
Milan situr í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig, en Genoa er í þrettánda sæti með 13 stig.
Atalanta vann á meðan 1-0 sigur á Monza þar sem Nikola Krstovic skoraði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik.
Með sigrinum komst Atalanta upp í tólfta sæti með 14 stig, en Monza situr í átjánda sæti með sjö stig.
Genoa 1 - 2 Milan
0-1 Alphadjo Cisse ('13 )
0-2 Christian Pulisic ('19 )
1-2 Mikael Egill Ellertsson ('88 )
Monza 0 - 1 Atalanta
0-1 Nikola Krstovic ('49 )