Lið vikunnar í enska - Liverpool spilar betur með hann í liðinu

Markvörður: Bernd Leno (Fulham) - Varði nokkrum sinnum frábærlega áður en Fulham jafnaði metin gegn Newcastle.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Ronald Araujo - Hann gerir gæfumuninn í varnarleiknum. Liverpool spilar betur og eru öruggari með hann í liðinu. Spilaði vel í 3-1 sigri á Crystal Palace.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Jair Cunha (Nottingham Forest) - Hélt Haaland í skefjum og skoraði í sigri á Man City.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Tarik Muharemovic (Leeds United) - Mjög öruggur í vörninni í sigri á Tottenham.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Nordi Mukiele (Sunderland) - Lék lykilhlutverk í sigri á Chelsea.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Leon Goretzka (Aston Villa) - Var rólegur á boltanum, með góðar sendingar og skoraði í 4-4 jafntefli gegn Man Utd.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Alexis Mac Allister (Liverpool) - Deeney skilur ekki hvers vegna hann hefur ekki fengið nýjan samning. Þegar hann er upp á sitt besta telur Deeney að Liverpool geti verið með í titilbaráttunni. Skoraði í 3-1 sigri á Crystal Palace.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Enzo Le Fee (Sunderland) - Stígur upp á stórum augnablikum fyrir Sunderland. Skoraði sigurmarkið gegn Chelsea.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Kieran Dewsbury-Hall (Everton) - Kóngurinn á miðjunni gegn Coventry og skoraði glæsilegt mark.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Thierno Barry (Everton) - Skoraði tvennu og lagði upp eitt gegn Coventry.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Liam Delap (Nottingham Forest) - Hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu en minnti á sig gegn gömlu félögunum í Man City og skoraði tvennu.

Mynd: EPA

Stjórinn: Mikel Arteta (Arsenal) - Deeney segir að tímabilinu sé lokið. Arsenal er búið að vinna titilinn.

Mynd: EPA


Mynd: BBC
