08.11.26 - 16:53
Brynjar Ingi Erluson
„Við erum ekki í titilbaráttunni“

Pascal Gross

Mynd: EPA

Pascal Gross

Mynd: EPA
Pascal Gross, miðjumaður Brighton, segir liðið ekki vera í titilbaráttunni þrátt fyrir að vera aðeins fimm stigum á eftir toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
England: Fyrsta deildarmark Wirtz kom í sigri á Palace - Chelsea tapaði á leikvangi ljóssins
Brighton hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og náð í 22 stig af 30 mögulegum í fyrstu tíu umferðunum.
Gross skoraði síðara mark Brighton í 2-0 sigrinum á Brentford í dag, en hann vill ekki gera of mikið úr góðu gengi liðsins og segir það ekki vera komið í titilbaráttuna.
„Nei, við erum ekki í titilbaráttunni, en við höfum byrjað tímabilið mjög vel. Þetta er samt bara byrjun tímabilsins.“
„Þú sérð hvernig enska úrvalsdeildin er, hversu mjótt er á mununum og hvernig úrslitin geta farið. Við látum þetta ekki stíga okkur til höfuðs því við höfum þurft að hafa mikið fyrir stigunum og stundum snýst þetta bara um að vera á góðu skriði. Ég er hins vegar mjög ánægður með að fara inn í landsleikjahléið í þessari stöðu,“ sagði Gross.