Fotbolti.net
08.11.26 - 14:43
Brynjar Ingi Erluson

Brjálaður yfir því að þurfa mæta í viðtal í hálfleik - „Þetta er algjört kjaftæði“

Pablo Maffeo var ekki sáttur að þurfa mæta í viðtal

Pablo Maffeo var ekki sáttur að þurfa mæta í viðtal

Canon

Mynd: EPA

Pablo Maffeo, leikmaður Valencia, var brjálaður yfir því að þurfa að mæta í hálfleiksviðtal hjá DAZN í leik liðsins gegn Real Madrid í La Liga á Spáni í gær.
Spánn: Guler frábær í sigri Real Madrid
TENGT EFNI

Spánn: Guler frábær í sigri Real Madrid

Madrídingar fóru með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn, en Maffeo var allt annað en sáttur við dómgæsluna.

Hann taldi halla á Valencia og hafði sjálfur fengið gult spjald skömmu áður en Real Madrid skoraði fyrra mark sitt.

Það er orðið hluti af útsendingum frá spænsku úrvalsdeildinni að taka viðtöl við leikmenn í hálfleik, en Maffeo var greinilega ekki hrifinn af þeirri nýjung og lét fréttamann DAZN heyra það.

„Ég hef engan áhuga á þessu viðtali. Þetta er algjört kjaftæði og á ekki heima hér þegar við erum í miðjum leik.“

„Það er verið að dæma brot á okkur fyrir eitthvað sem er ekki einu sinni brot. Nú erum við samt hér í þessu viðtali, þannig að spurðu bara að því sem þú vilt.“

„Ég vona að dómarinn verði sanngjarnari. Þetta var ekkert brot í aðdraganda fyrsta marksins og það hafði áhrif á okkur. Við komumst allt of sjaldan inn í vítateiginn og spilamennskan hefur verið slök, en við erum samt að berjast,“
sagði Maffeo.

Marcelo, fyrrum leikmaður Real Madrid, gerði grín að Maffeo á samfélagsmiðlum og velti því fyrir sér hvers vegna hann hataði Real Madrid svona mikið.

Maffeo á sér enda langa sögu þegar kemur að Madrídingum og hefur meðal annars átt í persónulegum deilum við Vinicius Junior. Þar gekk hann svo langt að segjast geta rotað Brassann á innan við tíu sekúndum.

Viðtalið má sjá hér fyrir neðan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.